...
Hitt og þetta:
13.05.2009 15:14:40 / 0408

Júróvisjónrýni 14. maí 2009

Jæja, 7 af 10 rétt í gær, sjáum hvað gerist á morgun...

KRÓATÍA: Já, dálítið öðruvísi lag. Ansi flott hjá þeim bara! Ég get þó ekki sagt að ég hafi sérstakan áhuga á svona tónlist... en vel gert engu að síður.

ÍRLAND: Já, já, alltílæ! Alveg hægt að raula með þessu... ekkert brill en alveg þokkalegt.

LETTLAND: Hm.. þetta er nú bara ofur leiðinlegt! Það er alveg yfirdrifið nóg að hlusta á c.a. 1 mínútu af þessu!

SERBÍA: Er að velta fyrir mér hvort þetta atriði sé grín eða ekki? Söngvaranum getur að minnsta kosti ekki verið alvara með þetta hár! Ég skil náttúrulega ekkert í textanum en ég held að þetta eigi örugglega að vera grín, verst að það er ekkert fyndið! Og heldur ekkert skemmtilegt! Harmonikkuleikarinn má þó eiga það að hann er helvíti flinkur!

PÓLLAND: Voða sætt en hvorki fugl né fiskur þó...

NOREGUR: Flottur! Geðveikt! Ég fíla fiðluspilið í botn, flott og líflegt lag og mikið líf á sviðinu vonandi verður það líka í Moskvu. Finnst samt eins og ég þurfi að venjast röddinni hans Alexanders aðeins betur... svolítið sérstök en ekki endilega slæm.

KÝPUR: Þetta lag held ég að eigi mikla möguleika á að verða slæmt á sviði... það lifnar nú aðeins við þegar líður á lagið þó það hafi verið arfaslappt í byrjun. Æ,æ svo kemur pása í hljóðfæraleiknum og allir klappa saman höndum... smá kjánahrollur.

SLÓVAKÍA: Hef bara eitt um þetta að segja: leiðinlegt!

DANMÖRK: Jæja, þá er það gæinn sem sló Heru út! Já, nei ekki skil ég af hverju! Með því slappasta sem ég hef heyrt frá Dönum lengi. Reyndar hafa þeir oft unnið á þegar líður á keppnina og verið afskaplega sjarmerandi á sviðinu svo að hver veit... kannski á ég eftir að fíla þetta á endanum...

SLÓVENÍA: Þó ég hafi lofað fiðlurnar í Norska laginu áðan þá eru þessar ekkert að gera sig. Það fer heldur ekki mikið fyrir söng í þessu lagi enda hangir söngkonan á bak við tjald nánast allt lagið, a.m.k. í vídjóinu.

UNGVERJALAND: Þetta minnir mig nú óneitanlega á lagið “In the disco” framlag Bosníu Hersegóvínu síðan 2004. Algjörlega laglínulaust og dull!

ASERBAÍDSJAN: Þetta er lag sem ég er viss um að nær langt og verður vinsælt í keppninni. Mér finnst það að vísu grútleiðinlegt en ég hlakka samt til að sjá hvernig það kemur út á sviðinu.

GRIKKLAND: Hann Sakis greyið er nú aðeins of súkkulaðilegur eitthvað. Og ég get nú eiginlega bara sagt það sama um þetta lag og framlag Aserbaídsjan í ár...

LITHÁEN: Þetta er eflaust ágætt lag og kannski svolítið öðruvísi en önnur lög í júróvisjón og það er út af fyrir sig gaman að því. Framburður söngvarans er þó ansi slakur og að mínu mati er lagið auðvitað hundleiðinlegt...

MOLDAVÍA: Etnískt sánd svo um munar! Alltaf dálítið gaman af því, hey þetta er bara bráðskemmtilegt og fjörugt! Sjælalalæla....Hehey, hehey, ju di hora din moldova... sjælalalæla....

ALBANÍA: æh.... veit ekki. Frekar leiðinlegt bara og sérdeilis vondur enski framburðurinn hjá  söngkonunni.

ÚKRAÍNA: Það er eitthvað töff beat í þessu lagi sem ég fíla, viðlagið er frekar leiðinlegt samt. En svona í heild er þetta bara alltílæ.

EISTLAND: Mér finnst eins og allir eigi að vera í kjól og hvítt þegar þetta lag verður spilað, það er einhvernvegin svo “klassískt”. Mjög flott og vandað! Ekkert besta lagið í keppninni samt.

HOLLAND: Vá, kjánahrollur! Þetta er skelfilegt! Hlustið eftir textanum! Ahahahahaha..... elsku kallarnir!

Mér fannst ansi erfitt að spá fyrir um hverjir kæmust upp úr þessum riðli en ég giska þó á:
Króatíu
Noreg
Aserbaídsjan
Grikkland
Moldavíu
Úkraínu
Eistland
Írland
Albaníu
Lettland

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.05.2009 12:12:13 / 0408

Júróvisjónrýni 12. maí 2009

Jæja, nú er ég loksins búin að einu af vorverkunum... spá í júróvisjón ;). Ef einhver hefur áhuga þá er þetta mitt mat/mín spá fyrir annað kvöld:

SVARTFJALLALAND: Ég get ekki sagt að þetta sé gott lag en samt er vel hægt að dilla sér aðeins við það svona sem fyrsta lag keppninnar. Kemur manni í júróvisjón fíling að fá svona “up beat” lag í byrjun.

TÉKKLAND: Skelfilega hallærislegt! Alltaf heldur dapurlegt þegar fullorðnir karlmenn klæðast ofurhetjubúningum með skikkju, einkum og sér í lagi ef þeir eru eins rindilslega vaxnir og tékkneski söngvarinn... lagið er líka vont!

BELGÍA: Úllala... Elvis baby! Elska bassann í þessu lagi, algjörlega my cup of tea! Lallallallalala.... love it! Ég á sko eftir að dilla mér með þessu lagi! Söngvarinn er þó ekkert besta Elvis eftirherma í heimi en það skiptir ekki nokkru máli.

HVÍTA RÚSSLAND: Söngvarinn þarf nauðsynlega að komast í klippingu hið snarasta! Hvíta Rússland á eftir að tapa fjölmörgum stigum á hárgreiðslu söngvarans einni saman ég þori að fullyrða það! Lagið er hins vegar nokkuð gott verst að maður þarf að “horfa” á það með lokuð augun.

SVÍÞJÓÐ: Þetta “óperupopp” vinnur ótrúlega á, er dáldið svona “límheilalag”. Er bara orðið nokkuð gott eftir nokkrar hlustanir. Mér finnst söngkonan þó frekar slöpp á neðri tónunum enda heyrist mér röddin hennar njóta sín best lengst uppí ra...gati á tónstiganum.

ARMENÍA: Jæja, loksins kemur þessi etníski hljómur sem er alltaf svo skemmtilegur í júróvisjón. Ágætt lag sem verður mun smartara þegar þær leggja enskunni og syngja á móðurmálinu. Dáldið flott bara.

ANDORRA: Hún segir þetta kannski best sjálf: Æ,æ,æ...! Dáldið slöpp ginger spice eitthvað þessi söngkona. Afar máttlaust!

SWISS: Hm... finnst einhvernvegin lúkkið (leðurklædd og síðhærð hljómsveit) ekki passa við slakt lagið. Hefði viljað heyra eitthvað mun harðara og rokkaðra.

TYRKLAND: Það er eins og það vanti smá laglínu í þetta lag... það vantar a.m.k. eitthvað ekki alveg nógu kraftmikið að mínu mati. Gæti trúað að búningar verði af skornum skammti í þessu atriði en held samt sem áður að það komist áfram.

ÍSRAEL: Já, Ísrael klikkar ekki í “friðurájörð” lögunum. Úfff... ég sé að það er töluverð hætta á því að áhorfendur sofni þegar hér er komið sögu. Þetta er fjórða lagið í röð sem er ekki alveg að gera sig... þær segja í textanum: “There must be another way”, ég held að það hljóti að vera rétt hjá þeim eða kannski bara “another song”...

BÚLGARÍA: Yndislegt nafnið á söngvaranum “Krassimir”, ég get ekki að því gert að velta fyrir mér hvort hann sé illa skrifandi. En það er líka allt og sumt sem er yndislegt við framlag Búlgaríu í ár! Ég hugsa mér þó gott til glóðarinnar og býst við skrautlegum og broslegum performans á sviðinu í Moskvu.

ÍSLAND: Já, mér finnst okkar framlag bara nokkuð gott eftir það sem á undan er gengið og ég sannfærist alltaf betur og betur um það að Ísland sé afskaplega vel staðsett í keppninni... það er að segja svo lengi sem fólk er ekki hætt að horfa! Það skyldi þó aldrei vera að við kæmumst upp úr undankeppninni?

MAKEDÓNÍA: Nei, svei mér þá rokkað framlag frá Makedóníu, hvað er að gerast? Gítarsóló og alles! Batnandi þjóðum er best að lifa ;). Ég held svei mér þá að þetta sé besta lag sem Makedónía hefur sent í júróvisjón. Það eitt segir þó lítið um gæði lagsins almennt!

RÚMENÍA: Jæja, fínt að fá eitt svona danslag til að hrista upp í partýinu! Hefði reyndar viljað hafa það dáldið betra en ég læt það duga.

FINNLAND: Já, fínt! Þetta dugar! Aldeilis ágætt! Ég á eflaust eftir að dilla mér dáldið við þetta í náinni framtíð. Besta lagið so far!

PORTÚGAL: Já... ég hef nú aldrei haft sérstaklega gaman af framlögum Portúgal í gegnum tíðina en þetta er nú alltílæ bara... ekkert meira en það þó.

MALTA: Hún stendur nú alltaf fyrir sínu hún Chiara! Lagið sjálft er svo sem ekkert sérstakt, ekkert lélegt heldur en flutningurinn er samt kraftmikill og góður.

BOSNÍA HERSEGÓVÍNA: Mér dettur eiginlega bara eitt orð í hug þegar ég horfi á myndbandið: Hjálpræðisherinn. Lagið er óttalega dapurlegt eitthvað og söngvarinn hljómar svolítið eins og hann sé með grátstafinn í kverkunum... kannski er hann að grátbiðja fólk um að kjósa sig áfram. Ég er bara ekki nógu sleip í “Bosnísku Hersegóvísku” til að geta sagt til um það.

Þau 10 lönd sem komast svo upp úr riðlinum skv. minni fyrstu ágiskun eru:

Svartfjallaland
Hvíta Rússland
Svíþjóð
Armenía
Tyrkland
Ísland
Makedónía
Rúmenía
Finnland
Malta


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.03.2009 12:26:33 / 0408

Pælingar í kreppunni...

Við hjónin erum ömurlegustu og nískustu foreldrar sem um getur, að mati dóttur okkar að minnsta kosti.  Jú, það getur vel verið satt hjá henni þar sem að við höfum í gegnum tíðina vísvitandi stillt í hóf allar þær gjafir sem við gefum börnunum okkar.  Það kemur nú að hluta til af sjálfu sér þar sem að við höfum nú aldrei vaðið beint í peningum en okkur finnst bara líka að börn eigi ekki að venjast því að fá alltaf allt upp í hendurnar sem þeim dettur í hug.  Kannski gamaldags en hvorugt okkar foreldranna bjó við það að fá allt upp í hendurnar þegar við vorum lítil og ég held að við höfum ekki hlotið neinn varanlegan skaða af því, svei mér þá.  Þar að auki hafa börn ekkert endilega mest gaman af dýrum hlutum, oft er pappakassinn utan af dótinu bara skemmtilegri.  Fyrir utan það hvað ég held að börn hafi gott af því að nota ímyndunaraflið og finna jafnvel upp ný not fyrir dótið sitt.  Eins og til dæmis að nota dótakassa á hvolfi fyrir eldavél, draco-kalla fyrir bland í poka í búðarleik,  örbylgjuofn fyrir bílskúr o.s.frv.

Núna í vor vildi svo til að körfubolti dóttur minnar týndist í skólanum.  Hún var að vonum svekkt yfir því að geta ekki spilað körfubolta í frímínútum.  Ég stakk þá uppá því að einhver annar í bekknum kæmi með körfubolta í skólann daginn eftir.  Þá segir dóttir mín; „það á enginn annar körfubolta, hinir krakkarnir eiga bara svona dýrt dót eins og ipod og playstation og svoleiðis.“  Einmitt eitthvað sem dóttir mín á ekki til... ég vissi ekki hvort ég ætti að finna til sektarkenndar yfir því að hún ætti ekkert í líkingu við það sem jafnaldrar hennar áttu eða hvort ég ætti bara að vera fegin og glöð. 

Ég þurfti þó ekki að hugsa mig um lengi, ég brosti út í annað og fór strax daginn eftir og splæsti í nýjan körfubolta á 500 kall og gaf dóttur minni!

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.02.2009 22:32:13 / 0408

Júróvisjón

Úff.... drepleiðinlegt lag!  Yohanna eða Jóhanna eða hvað sem hún kallar sig í dag gerir þetta nú samt ágætlega og lagið er kannski ágætt þannig séð, það er bara svo dreeeeeep....

Ég held þó að Jóhanna Guðrún hafi enn tíma til að liggja í ljósum, kaupa brúnkukrem og hvítta duglega í sér tennurnar og þá verður framlag Íslands 2009 nánast alveg eins og framlag Póllands 2008.  En eins og flestir vita þá komst pólska lagið, öllum að óvörum, upp úr undankeppninni í fyrra!  Svo að ekki er öll nótt úti enn þó útlitið sé vissulega svart!

En ég hef svosem aldrei verið þekkt fyrir góðan tónlistarsmekk...

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.12.2008 15:34:40 / 0408

Jóla hvað?

Jæja, já!  Þá er ég búin að reyna að baka fyrir jólin.  Ég komst að raun um að ég er ömurlegur bakari.  Deigið mitt varð að leðju sem rann út um alla bökunarplötu og varð á endanum eins og ein stór kaka með nokkrum götum...  frekari smákökubakstur hefur því verið settur á hold þar til bræðin hefur runnið af bakaranum. (Sem ég er þó alls ekki viss um að verði fyrir jól).

Heilbrigðis og hollustu átakið sem hefja átti að loknum prófum hefur líka verið sett á hold... reyndar hófst það aldrei að fullum krafti eftir próf en úr því sem komið er hefur því verið aflýst þar til á næsta ári enda “against nature” að byrja í heilsuátaki viku fyrir jól! Ekki satt?

Ég reyni nú í örvæntingu minni að komast í jólaskap innan um misheppnaðar smákökur illa föndruð jólakort og mislukkaðan aðventukrans... hver veit, enn er vika til stefnu kannski tekst það hjá mér!

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.12.2008 17:12:32 / 0408

skilyrt viðbrögð? Próf > hungur

Það er eins gott að ég er ekki búin að baka til jólanna, það hefði eflaust horfið á einu bretti.  Ég bara skil ekki af hverju ég verð alltaf svona svöng þegar ég er í prófum og verkefnavinnu.  Ég get bara varla einbeitt mér þar sem að ég vil helst alltaf vera að hugsa um mat.  Ég stalst meira að segja í barnaafmæli rétt áðan og át á mig gat, svo kom ég heim og settist niður við skruddurnar og tölvuna... og viti menn, mín bara orðin banhungruð!  Uss... meira ruglið!

En glorsoltin sit ég með hælsæri í eyranu eftir eyrnatappana, en áfram skrölti ég þó.... jólafrí á morgun eða hinn!!! :D  Jibbí jei!

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.11.2008 19:48:28 / 0408

Framtíðaráform

Við mæðginin vorum að ræða framtíðina áðan.  Sonur minn er fyrir löngu búinn að ákveða hvað hann ætlar að vera þegar hann verður stór; bílaviðgerðamaður, bóndi og pabbi!  Hann ætlar að eiga mörg börn en hann veit ekki hvað hann ætlar að skíra þau.  Kannski ætlar hann að skíra eina stelpuna Kristínu en hann ætlar sjálfur að heita Halldór þegar hann verður stór – alveg eins og pabbi!  Litli sjarmörinn leit svo blíðlega á mömmu sína og sagði í fullri einlægni: „en mamma, hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór alveg eins og pabbi?“

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.11.2008 21:36:09 / 0408

Bí bí og blaka...

Hann sonur minn vildi endilega láta syngja fyrir sig lögguvísu þegar verið var að svæfa hann áðan.

Mér datt í hug að syngja fyrir hann vögguvísuna
Djúp og breið, en viðlag sonar míns finnst mér mun skemmtilegra en hjá upphaflegum höfundi:

Súpa’ og brauð, súpa’ og brauð,
það er á sem rennur súpa’ og brauð

Hann hefur kannski verið eitthvað svangur þegar hann lærði þetta...?

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.11.2008 15:22:29 / 0408

Að feta sig í átt að sjálfstæði...

Gelgjan mín litla, 10 ára, er í þessum töluðu orðum stödd í Smáralindinni með vinkonum sínum.  Væntanlega að skoða föt eða snyrtidót frekar en leikföng.  Það er starfsdagur í skólanum hjá þeim í dag og þess vegna fannst þeim tilvalið að skella sér í mollið með strætó?  Mikið hrikalega er hún dóttir mín að verða fullorðin...

Ég man að þegar ég átti 10 ára afmæli vildi ég ekki halda uppá það, ég vildi frekar fá að fara ein í Kringluna (engin Smáralind þá sko... enda Kringlan splúnkuný á þeim tíma).  Ég fékk því framgengt og við Þóra skelltum okkur í Kringluna, fengum okkur Eldsmiðjupizzu með nautahakki og sveppum og eyddum öllum okkar peningum í plagöt og nælur með Michael Jackson.  Reyndar keyptum við líka hrekkjadót; blátt tyggjó. Ég man sérstaklega eftir því vegna þess að þegar við biðum eftir strætó eftir Kringluferðina smökkuðum við það.  Tyggjóið hennar Þóru var fullkomlega eðlilegt fyrir utan að hún leit út fyrir að hafa drukkið blek – öll blá um munninn.  En tyggjóið mitt hins vegar var eitthvað skrýtið.  Einhverra hluta vegna náði ég ekki að tyggja það eins og tyggjó heldur leystist það upp í munninum á mér og ég man að ég sat í strætó alla leiðina frá Kringlunni og upp í Breiðholt með munnin fullan af munnvatni og tyggjótægjum fljótandi í því... ughhh...

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.11.2008 20:09:25 / 0408

Alltaf jafn gaman að fara með honum syni mínum í búðir...

...áðan benti hann á þunnhærðan manninn sem var að afgreiða okkur og sagði stundarhátt eins og ekkert væri sjálfsagðara: hann er dáldið sköllóttur held ég!

» 1 hafa sagt sína skoðun

31.10.2008 09:31:05 / 0408

Ísland er stórasta land í heimi!

Til hamingju stelpur með frábæran árangur!

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.10.2008 09:21:16 / 0408

Allir á völlinn...

...svo lengi sem hann verður þiðnaður og leikurinn spilaður!

Í dag getur fyrsta íslenska fótboltalandsliðið tryggt sér sæti á EM, og ég hef ekki nokkra trú á öðru en það gerist í kvöld!  Miðað við það sem ég hef séð til þessara hörkukvenna í sumar þá efast ég ekki eitt augnablik!  Ég hvet því alla til að mæta í Laugardalinn og hvetja stelpurnar okkar áfram.  Það verður ekki leiðinlegt að upplifa stemmninguna á vellinum þegar þær verða búnar að tryggja sér sætið á EM! :haha:

Það er svo engin afsökun að það sé kalt úti! Íslendingar, af öllum, ættu að eiga til síðar nærbrækur og lambúshettu!

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.10.2008 22:53:44 / 0408

Ástandið...

Hann sonur minn hefur orðið fyrir barðinu á slæmu efnahagsástandi þjóðarinnar.

Um daginn þegar hann ætlaði að fara að horfa á barnatímann í sjónvarpinu varð hann fyrir því óláni að í stað Gurru grís var Geir H. Haarde mættur á skjáinn í beinni útsendingu.  Þetta fannst syni mínum heldur léleg skipti og heimtaði haldbærar skýringar.  Ég svaraði því til annars hugar að allir bankarnir væru að fara á hausinn.  Ég sá hvernig augun í drengnum stækkuðu og kjálkinn seig niður á bringu.  Svo tók hann viðbragð og spýttist út í stofuglugga, kíkti út og sagði svo : Nei, ekki okkar banki, hann er ekki á hvolfi.  Þakið er ekki undir.

Á föstudaginn var litli kúturinn svo orðinn lasinn, kominn með hita og var ansi slappur.  Ég spurði hvort honum væri einhversstaðar illt.  , mér er illt hérnasvaraði hann aumur og benti upp í sig ég er með KREPPU í munninum.  Þó svo að kreppan geti lagst þungt á fólk lýsir það sér væntanlega á annan hátt en eymsli í munni enda kom í ljós við nánari læknisfræðilega athugun að drengurinn þáðist af streptókokkum en ekki kreppu!  Kannski sem betur fer, þar sem að ég er hrædd um að penisilínkúr dugi skammt á kreppuna...

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.10.2008 22:50:56 / 0408

This is a man's world

Fyrir nokkrum vikum bloggaði ég um uppátæki samnemanda míns í kynjafræðinni.  Ég sagði frá því hvernig hún límdi myndir af 14 konum sem kenna við háskólann yfir allar þær 14 myndir sem fyrir voru í kennslustofunni, myndir af hvítum miðaldra karlmönnum sem kennt höfðu við háskólann. 

Að öllum l
íkindum fór þetta fyrir brjóstið á einhverjum þar sem myndirnar af konunum fengu ekki að hanga uppi nema í rétt rúma viku.  Ég bjóst reyndar alveg eins við því að þær yrðu fjarlægðar fljótlega en það sem gert var í framhaldinu var eitthvað sem ég bjóst ekki við.  Haldið þið að það hafi ekki bara verið útbúnar 12 nýjar myndir og hengdar upp á vegg. 

Nú hanga 26 svart/hvítar myndir af hvítum miðaldra karlmönnum uppi á vegg í kynjafræðistofunni!


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.10.2008 17:54:02 / 0408

Sjálfsvorkun 100%

Það er svoooooo leiðinlegt að skrifa ritgerðir!!!  Ég vorkenni sjálfri mér svooooo mikið!!! :cry:

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18
Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 76246
Leitarbox